Netspjall með gervigreind

Svör strax, allan sólarhringinn.Þú tekur við þegar þarf.

Supportdesk setur spjallbólu á vefinn þinn. Gervigreind svarar gestum út frá þinni þekkingu og réttir þér samtalið um leið og gestur þarf manneskju. Öll samtöl af öllum vefjunum þínum í einu innhólfi.

Svona virkar það
Dæmi um innhólfið í Supportdesk
  • Svarar straxAllan sólarhringinn, líka um helgar.
  • Kallar á þigÞegar gestur þarf manneskju.
  • Eitt innhólfAllir vefirnir þínir á einum stað.
  • Tilkynning í símannHvar sem þú ert.

Eiginleikar

Bottinn sér um algengu spurningarnar. Þú um þær sem skipta máli.

  • Svarar bara því sem hann veit

    Hvert svar byggir á þinni þekkingu. Ef svarið er ekki þar segir bottinn það og býðst til að kalla á þig, í stað þess að giska.

  • Manneskja þegar þarf

    Gestur getur alltaf beðið um manneskju. Ef enginn er við biður bottinn um netfang og samtalið bíður þín.

  • Allir vefir í einu innhólfi

    Rekur þú fleiri en einn vef? Skiptu á milli þeirra eða sjáðu öll samtöl saman. Hver vefur fær sinn lit og sína þekkingu.

  • Lærir af vefnum og skjölunum

    Bottinn les vefinn þinn og tengd Google skjöl og töflur. Breyttu töflunni og bottinn veit það innan fimm mínútna.

  • Tilkynning í símann

    Settu Supportdesk á heimaskjáinn og síminn lætur vita um leið og gestur vill tala við manneskju.

  • Létt fyrir vefinn

    Kóðinn er um 4 KB og spjallið sjálft hleðst fyrst þegar gestur opnar það. Hraði vefsins helst.

Svona virkar það

Komið í gang á nokkrum mínútum

  1. 1Settu eina línu á vefinnAfritaðu kóðann og límdu hann á vefinn. Spjallbólan birtist í horninu á öllum síðum.
  2. 2Kenndu bottanumSkrifaðu það sem hann á að vita, tengdu Google skjöl og töflur, eða láttu hann lesa vefinn sjálfan.
  3. 3Taktu við þegar þarfGestur biður um manneskju, síminn lætur vita og þú svarar úr innhólfinu.
vefurinn-thinn/index.html
  ...
  <!-- Supportdesk -->
  <script
    src="https://supportdesk.blynk.is/w/LYKILL.js"
    async></script>
</body>
Ein lína, sama á öllum síðum. Þú færð þinn lykil í stillingunum.

Verðskrá

Eitt verð á vef. Ekkert á mann.

Fast verð fyrir hvern vef, sama hve mörg ykkar svara. Fyrsti mánuðurinn er frír.

Fyrsti mánuðurinn frír

Grunnur

2.900 kr.á mánuði fyrir hvern vef, án VSK

  • Spjallbóla á vefinn, í þínum lit og með þinni mynd
  • Bottinn svarar út frá þinni þekkingu, allt að 200 samtöl á mánuði
  • Ótakmörkuð samtöl við þig
  • Lærir af vefnum og Google skjölum og töflum
  • Allir vefirnir þínir í einu innhólfi
  • Tilkynningar í símann

Skrifaðu okkur í spjallinu og við setjum þig upp.

Stærri vefir

Sérverðfyrir mikla umferð

  • Allt sem er í Grunni
  • Fleiri en 200 samtöl við bottann á mánuði
  • Við setjum spjallið upp fyrir þig
  • Við hjálpum þér að kenna bottanum
  • Beint samband við okkur

Spurningar

Algengar spurningar

Finnurðu ekki svarið? Spyrðu bottann í horninu.

Hvað kostar Supportdesk?

2.900 kr. á mánuði fyrir hvern vef, án VSK, og fyrsti mánuðurinn er frír. Innifalin eru allt að 200 samtöl við bottann á mánuði og ótakmörkuð samtöl við þig.

Þarf ég að kunna forritun?

Nei. Þú afritar eina línu af kóða og límir hana á vefinn. Ef þú vilt setjum við hana inn fyrir þig.

Getur bottinn bullað?

Bottinn svarar aðeins út frá þekkingunni sem þú gefur honum: texta, Google skjölum og síðum vefsins. Ef svarið er ekki þar segir hann það og býðst til að kalla á manneskju.

Hvað gerist ef enginn er við?

Bottinn segir gestinum að teymið svari og biður um netfang. Samtalið bíður í innhólfinu þínu.

Á hvaða tungumálum svarar bottinn?

Á því tungumáli sem gesturinn skrifar. Texti spjallsins sjálfs er á íslensku eða ensku.

Get ég notað Supportdesk á fleiri en einum vef?

Já. Hver vefur fær sitt spjall, sinn lit og sína þekkingu, og öll samtöl koma í eitt innhólf.

Hvar eru gögnin geymd?

Samtöl eru geymd í gagnagrunni í London. Gervigreindin er Claude frá Anthropic, sem þjálfar ekki líkön sín á gögnum sem send eru um vefþjónustu þess.

Prófaðu það hér og nú

Spjallbólan neðst í hægra horninu er Supportdesk í notkun. Spurðu hana hvað sem er, eða talaðu við manneskju.