Hvaða persónuupplýsingar Supportdesk vinnur, hvers vegna og hvert þær fara.
Uppfært 10. október 2026
Supportdesk er selt fyrirtækjum. Hafir þú skrifað í spjallbólu á vef einhvers fyrirtækis er það fyrirtæki ábyrgðaraðili þeirra skilaboða, og við vinnum þau eingöngu samkvæmt fyrirmælum þess. Viljir þú láta eyða skilaboðunum þínum fer sú beiðni til fyrirtækisins sem þú skrifaðir, ekki til okkar.
Við erum ábyrgðaraðili fyrir aðgangum starfsfólks sem notar vöruna, fyrir reikningsupplýsingum og fyrir því sem gerist á vefnum okkar sjálfum. Þær beiðnir fara beint til okkar.
Fyrir hönd fyrirtækisins sem notar vöruna:
Fyrir okkur sjálf:
Til að semja svar sendum við texta samtalsins og þá þekkingu sem fyrirtækið hefur sett inn til Anthropic, sem rekur líkanið. Sú vinnsla fer fram í Bandaríkjunum.
Anthropic notar ekki gögn sem berast í gegnum forritaskil sín til að þjálfa líkön. Flutningurinn út fyrir EES byggir á stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar ESB.
Fyrirtækið getur slökkt á gervigreindinni. Þá fer ekkert samtal til Anthropic og starfsfólk svarar sjálft.
Kveiki starfsmaður á tilkynningum skráir vafrinn hans tæki hjá sinni eigin tilkynningaþjónustu, hjá Apple, Google eða Mozilla eftir því hvaða vafra hann notar. Við sendum tilkynninguna þangað og hún berst í tækið.
Enginn aðgangur hjá okkur er á milli, og auðkennið auðkennir uppsetninguna en ekki einstaklinginn. Það hverfur þegar slökkt er á tilkynningum.
Það eru engin greiningartól, engin auglýsingatól og engin rakningarkex á Supportdesk. Ekkert er safnað til mælinga eða auglýsinga, og engum gögnum er deilt með þriðja aðila í þeim tilgangi.
Við seljum ekki persónuupplýsingar.
Gagnagrunnurinn, þar sem samtöl, skilaboð og aðgangar liggja, er í London hjá Neon. Bretland er utan EES en fellur undir ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB um fullnægjandi vernd persónuupplýsinga, sem þýðir að flutningur þangað krefst ekki sérstakra ráðstafana umfram hana.
Gervigreindin er undantekningin. Hún er rekin í Bandaríkjunum, eins og lýst er hér að ofan, og sá flutningur byggir á stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar ESB.
Við reiðum okkur á fáa aðila sem eru nauðsynlegir til að reka þjónustuna. Listinn er í kaflanum hér fyrir neðan á þessari síðu og í vinnslusamningnum, og við tilkynnum um breytingar á honum.
Samtöl og skilaboð fyrirtækis eru geymd á meðan samningur við það er í gildi, og eytt þegar honum lýkur. Fyrirtækið getur beðið um eyðingu fyrr.
Aðgangi starfsmanns og lotum hans er eytt þegar aðgangurinn er felldur niður. Reikningar eru geymdir eins lengi og bókhaldslög krefjast.
Þú átt rétt á að vita hvaða upplýsingar eru unnar um þig, fá afrit af þeim, láta leiðrétta þær, og við ákveðnar aðstæður láta eyða þeim, takmarka vinnslu eða mótmæla henni.
Snúi beiðnin að samtali við fyrirtæki sem notar Supportdesk skal henni beint til þess fyrirtækis, og við aðstoðum það við að svara. Snúi hún að aðgangi hjá okkur skaltu skrifa okkur. Við svörum innan mánaðar.
Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar teljir þú vinnsluna ólögmæta.
| Aðili | Hlutverk | Staðsetning |
|---|---|---|
| Vercel | Hýsing á vefnum og þjóninum sem svarar beiðnum. | ESB og Bandaríkin |
| Neon | Gagnagrunnurinn: aðgangar, vefir, samtöl og skilaboð. | Bretland (London) |
| Anthropic | Gervigreindin sem semur svör. Fær texta samtalsins og þekkinguna sem fyrirtækið hefur sett inn. | Bandaríkin |
| Innskráning starfsmanna, aðeins þegar Google innskráning er notuð. | ESB og Bandaríkin |