SupportdeskSkrá inn

Þjónustuskilmálar

Skilmálar um notkun á Supportdesk.

Uppfært 10. október 2026

Um þjónustuna

Supportdesk er spjallbóla sem fer á vef viðskiptavinar og innhólf þar sem starfsfólk hans les samtölin og svarar. Gervigreind svarar gestum út frá þeirri þekkingu sem viðskiptavinur setur inn og réttir samtalið til starfsmanns þegar gestur biður um manneskju eða þekkingin dugar ekki.

Þjónustan er seld fyrirtækjum, ekki neytendum. Með því að nota hana samþykkir fyrirtækið þessa skilmála, og sá sem samþykkir þá staðfestir að hann hafi umboð til þess.

Aðgangur og uppsetning

Viðskiptavinur fær aðgang að innhólfinu og eina línu af kóða til að setja á vefinn sinn. Við setjum aðganginn upp og hjálpum til við að kenna bottanum.

Hver notandaaðgangur tilheyrir einum nafngreindum einstaklingi og má ekki deila. Viðskiptavinur má færa aðgang á annan starfsmann, til dæmis þegar starfsmaður hættir.

Verð og greiðslur

Verð kemur fram í verðskrá á vefnum eða í samningi við viðskiptavin. Upphæðir eru án virðisaukaskatts nema annað sé tekið fram.

Reikningur er gefinn út mánaðarlega fyrir hvern vef. Fyrsti mánuðurinn er frír. Dragist greiðsla fram yfir eindaga leggjast á almennir dráttarvextir, og sé greiðsla ekki komin 10 dögum eftir eindaga má loka þjónustunni, enda hafi verið tilkynnt um það skriflega.

Uppsögn

Samningurinn gildir þar til öðrum hvorum aðila segir honum upp. Uppsögn tekur gildi í lok almanaksmánaðar og enginn uppsagnarfrestur er á almennum áskriftum.

Rifta má samningi án fyrirvara ef annar aðili vanefnir hann verulega og lagfærir ekki innan 30 daga frá skriflegri tilkynningu, eða fer í greiðslustöðvun eða gjaldþrot.

Hvað viðskiptavinur ber ábyrgð á

Viðskiptavinur ræður hvaða þekkingu bottinn hefur og ber ábyrgð á því að hún sé rétt. Bottinn svarar aðeins út frá henni og segist ekki vita þegar hana vantar, en hann staðfestir ekki að innihaldið sé satt.

Viðskiptavinur ber ábyrgð á því að hafa heimild til að vinna þau gögn sem berast í gegnum þjónustuna, og á samskiptum sinna starfsmanna við gesti.

Aðgengi og viðhald

Við sinnum tæknilegu viðhaldi og uppfærslum og leitumst við að halda þjónustunni aðgengilegri. Niðritími getur orðið vegna viðhalds, vegna aðstæðna hjá undirvinnsluaðilum okkar eða vegna atvika sem við ráðum ekki við.

Tæknileg aðstoð í gegnum spjall og tölvupóst er innifalin.

Takmörkun ábyrgðar

Við berum ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, svo sem töpuðum hagnaði, töpuðum tekjum eða rekstrarstöðvun, sem hlýst af notkun þjónustunnar eða af því að hún sé óaðgengileg.

Heildarábyrgð okkar takmarkast við þá upphæð sem viðskiptavinur greiddi fyrir þjónustuna síðustu 12 mánuði fyrir atvikið. Þetta á ekki við um tjón af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi.

Trúnaður og persónuvernd

Aðilar virða trúnað um það sem þeir fá aðgang að vegna samningsins.

Við vinnum persónuupplýsingar fyrir hönd viðskiptavinar. Um þá vinnslu gildir vinnslusamningurinn, sem er hluti af þessum skilmálum.

Lög og varnarþing

Skilmálarnir lúta íslenskum lögum. Ágreiningi sem aðilar leysa ekki með samkomulagi skal skjóta til Héraðsdóms Reykjavíkur.

Breytingar

Við megum breyta skilmálunum og tilkynnum þá með minnst 15 daga fyrirvara í tölvupósti. Hafni viðskiptavinur breytingunni innan þess tíma telst það uppsögn, og þeir skilmálar sem síðast giltu halda gildi út uppsagnartímann.

Undirvinnsluaðilar

AðiliHlutverkStaðsetning
VercelHýsing á vefnum og þjóninum sem svarar beiðnum.ESB og Bandaríkin
NeonGagnagrunnurinn: aðgangar, vefir, samtöl og skilaboð.Bretland (London)
AnthropicGervigreindin sem semur svör. Fær texta samtalsins og þekkinguna sem fyrirtækið hefur sett inn.Bandaríkin
GoogleInnskráning starfsmanna, aðeins þegar Google innskráning er notuð.ESB og Bandaríkin