SupportdeskSkrá inn

Vinnslusamningur

Samningur um vinnslu persónuupplýsinga, sbr. 28. gr. persónuverndarreglugerðarinnar.

Uppfært 10. október 2026

Aðilar og gildissvið

Viðskiptavinur er ábyrgðaraðili og við erum vinnsluaðili. Samningurinn gildir um þá vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram þegar viðskiptavinur notar Supportdesk, og er hluti af þjónustuskilmálunum.

Efni vinnslunnar

Tilgangur: að taka á móti erindum frá gestum á vef viðskiptavinar, svara þeim með gervigreind út frá þekkingu viðskiptavinar og koma þeim til starfsfólks hans.

Tegundir skráðra einstaklinga: gestir á vef viðskiptavinar og starfsfólk viðskiptavinar.

Tegundir upplýsinga: innihald skilaboða, netfang gests þegar hann skilur það eftir, slóð síðunnar þar sem spjallið hófst, auðkenni samtals, og aðgangsupplýsingar starfsfólks.

Viðskiptavinur skal ekki setja viðkvæmar persónuupplýsingar inn í þekkingargrunninn og skal stilla bottann þannig að hann kalli ekki eftir þeim.

Fyrirmæli

Við vinnum persónuupplýsingar eingöngu samkvæmt skjalfestum fyrirmælum viðskiptavinar. Stillingar hans í vörunni, og þessi samningur, teljast slík fyrirmæli.

Teljum við fyrirmæli brjóta gegn persónuverndarlögum tilkynnum við það.

Trúnaður og öryggi

Þeir sem hafa aðgang að upplýsingunum hjá okkur eru bundnir trúnaði sem helst eftir að störfum lýkur.

Gögn eru dulkóðuð í flutningi og í geymslu. Aðgangur er bundinn við þá sem þurfa hans vegna starfa sinna, og aðgangur starfsfólks viðskiptavinar að samtölum ræðst af stillingum hans sjálfs.

Undirvinnsluaðilar

Viðskiptavinur heimilar notkun þeirra undirvinnsluaðila sem taldir eru upp á þessari síðu. Við leggjum sömu skyldur á þá og á okkur sjálf.

Hyggjumst við bæta við eða skipta út undirvinnsluaðila tilkynnum við það fyrirfram, og viðskiptavinur má andmæla. Andmæli sem ekki tekst að leysa veita honum rétt til að segja upp þjónustunni.

Flutningur út fyrir EES

Gagnagrunnurinn er í London. Bretland er utan EES en fellur undir ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB um fullnægjandi vernd, og flutningur þangað byggir á henni.

Gervigreindin er rekin af Anthropic í Bandaríkjunum og sá flutningur byggir á stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar ESB.

Aðstoð við ábyrgðaraðila

Við aðstoðum viðskiptavin við að svara beiðnum skráðra einstaklinga, og við mat á áhrifum á persónuvernd og samráði við eftirlitsyfirvöld, að því marki sem eðli vinnslunnar krefst.

Verði öryggisbrestur tilkynnum við viðskiptavini það án ótilhlýðilegrar tafar og veitum þær upplýsingar sem hann þarf til að uppfylla tilkynningarskyldu sína.

Eyðing og endurskoðun

Við lok samnings eyðum við persónuupplýsingum viðskiptavinar, nema lög krefjist varðveislu. Viðskiptavinur getur beðið um afrit áður en þeim er eytt.

Við veitum viðskiptavini þær upplýsingar sem hann þarf til að sýna fram á að skyldum samkvæmt 28. gr. sé fullnægt, og heimilum úttekt sem hann framkvæmir eða lætur framkvæma, með hæfilegum fyrirvara.

Undirvinnsluaðilar

AðiliHlutverkStaðsetning
VercelHýsing á vefnum og þjóninum sem svarar beiðnum.ESB og Bandaríkin
NeonGagnagrunnurinn: aðgangar, vefir, samtöl og skilaboð.Bretland (London)
AnthropicGervigreindin sem semur svör. Fær texta samtalsins og þekkinguna sem fyrirtækið hefur sett inn.Bandaríkin
GoogleInnskráning starfsmanna, aðeins þegar Google innskráning er notuð.ESB og Bandaríkin